Hólmar Björn Sigþórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2024 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2024 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hólmar Björn Sigþórsson''' frá Bjargholti við Vesturveg 27, áður íþróttakennari, nú ökukennari og fasteignasali fæddist 17. júní 1962.<br> Foreldrar hans Sigþór Magnússon frá Fáskrúðsfirði, vélstjóri, f. 3. september 1939, og kona hans Ragna María Pálmadóttir, húsfreyja, verkakona, ræstitæknir, f. 27. mars 1941, d. 13. janúar 2024. Börn Rögnu og Sigþórs:<br> 1. Magnús Sigþórsson, f. 11. maí 1961. Fyrrum kon...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hólmar Björn Sigþórsson frá Bjargholti við Vesturveg 27, áður íþróttakennari, nú ökukennari og fasteignasali fæddist 17. júní 1962.
Foreldrar hans Sigþór Magnússon frá Fáskrúðsfirði, vélstjóri, f. 3. september 1939, og kona hans Ragna María Pálmadóttir, húsfreyja, verkakona, ræstitæknir, f. 27. mars 1941, d. 13. janúar 2024.

Börn Rögnu og Sigþórs:
1. Magnús Sigþórsson, f. 11. maí 1961. Fyrrum kona hans Halldóra Kristín Andrésdóttir. Kona hans Guðrún Margrét Jónsdóttir.
2. Hólmar Björn Sigþórsson, f. 17. júní 1962. Fyrrum kona hans Guðrún Hafdís Guðmundsdóttir. Kona hans Bryndís Elísa Árnadóttir.
3. Gestur Sævar Sigþórsson, f. 1963. Kona hans Halldóra Guðrún Hannesdóttir.
4. Ragnar Þór Sigþórsson, f. 1. maí 1971.

Hólmar Björn var með foreldrum sínum, í Bjargholti við Vesurveg 27 og á Háeyri við Vesturveg 11a .
Þau Guðrún Hafdís giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Bryndís Elísa hófu sambúð, eiga ekki börn saman. Þau búa í Vættaborgum í Rvk.

I. Kona Hólmars Bjarnar, skildu, Guðrún Hafdís Guðmundsdóttir, f. 14. janúar 1964 í Rvk. Foreldrar hennar Guðmundur Bjarnason, bifreiðasmiður, f. 2. febrúar 1942 í Keflavík, og kona hans Margrét Hafliðadóttir, húsfreyja, f. 25. desember 1946.
Börn þeirra:
1. Margrét María Hólmarsdóttir, kennari, f. 11. júní 1986 í Rvk. Sambúðarmaður hennar Hörður Ingi Harðarson.
2. Hólmar Karl Hólmarsson, tölvunarfræðingur, f. 7. júní 1988 í Rvk.

II. Sambúðarkona Hólmars Björns er Bryndís Elísa Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur, f. 25. júní 1970. Foreldrar hennar Árni Sörensen, f. 1. apríl 1947, og Rannveig Salóme Ólafsdóttir, f. 29. apríl 1948.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hólmar Björn.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubók.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.