Tómas Eiríksson (Ægissíðu)
Tómas Eiríksson frá Ægissíðu í Djúpárhreppi, Rang., sjómaður, skírður 24. janúar 1759 og lést 16. febrúar 1793.
Foreldrar hans voru Eiríkur Bjarnason bóndi, f. 1711, d. í desember 1765, og kona hans Helga Tómasdóttir húsfreyja, f. 1724, d. 18. apríl 1797.
Tómas var sjómaður í Eyjum.
Hann var ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.