Ormur Ormsson (rafvirkjameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. nóvember 2023 kl. 17:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. nóvember 2023 kl. 17:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ormur Ormsson (rafvirkjameistari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ormur Ormsson og Helga Kristmundsdóttir.

Ormur Ormsson rafvirkjameistari fæddist 4. mars 1891 í Efri-Ey í Meðallandi, V.-Skaft. og lést 26. desember 1965 í Borgarnesi.
Foreldrar hans voru Ormur Sverrisson bóndi víða, en lengst í Kaldrananesi í Mýrdal, f. 9. janúar 1853 á Grímsstöðum í Meðallandi, d. 4. janúar 1945 í Norðurkoti á Miðnesi, Gull., og kona hans Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja, f. 17. júlí 1853 á Eystri-Lyngum í Meðallandi, d. 9. apríl 1948 í Norðurkoti á Miðnesi.

Ormur var hjá foreldrum sínum í Efri-Ey til 1905, á Kaldrananesi 1905-1913, var í Gerðum í Garði, Gull. 1913-1915, lausamaður hjá föður sínum á Kaldrananesi 1915-1917.
Hann var í Eyjum 1917-1918, bjó í Hólshúsi, kom til Rvk 1918, var vélstjóri þar 1918-1929, rafvirki þar 1929-1931, bóndi í Hofgörðum á Snæfellsnesi 1931-1936, á Laxárbakka þar 1936-1946, rafvirki í Borgarnesi 1946 til æviloka.
Þau Helga giftu sig 1918, eignuðust 12 börn.
Ormur lést 1965 og Helga 1977.

I. Kona Orms, (1. júní 1918), var Helga Kristmundsdóttir frá Hólshúsi, húsfreyja, f. 19. desember 1897 í Nýjabæ, d. 3. maí 1977.
Börn þeirra:
1. Hrefna Ormsdóttir húsfreyja og saumakona í Reykjavík, f. 30. mars 1919, d. 22. apríl 2004, gift Þórði Guðjónssyni húsasmíðameistara.
2. Ormur Guðjón Ormsson rafvirkjameistari í Borgarnesi, síðar í Keflavík, f. 3. ágúst 1920, d. 17. janúar 2006, kvæntur Huldu Jóhannesdóttur húsfreyju, (skildu), síðar Sveinbjörgu Jónsdóttur húsfreyju.
3. Ingvar Georg Ormsson vélvirki í Keflavík, f. 11. ágúst 1922, kvæntur Ágústu Randrup húsfreyju.
4. Vilborg Ormsdóttir húsfreyja og talsímakona í Borgarnesi, f. 14. febrúar 1924, d. 13. október 2010, gift Guðmundi Sveinssyni bifreiðastjóra.
5. Sverrir Ormsson rafvirki í Reykjavík, f. 23. október 1925, d. 11. apríl 2014, kvæntur Döddu Sigríði Árnadóttur húsfreyju.
6. Þórir Valdimar Ormsson trésmíðameistari í Borgarnesi, f. 28. desember 1927, d. 13. júlí 2002, kvæntur Júlíönu Svandísi Hálfdánardóttur húsfreyju og iðnverkakonu.
7. Helgi Kristmundur Ormsson rafvirkjameistari í Borgarnesi, þá umsjónarmaður á Gufuskálum á Snæfellsnesi, en síðan fulltrúi hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur, f. 15. ágúst 1929, kvæntur Þuríði Huldu Sveinsdóttur húsfreyju.
8. Karl Jóhann Ormsson rafvirki í Borgarnesi, síðar í Reykjavík, f. 15. maí 1931, kvæntur Ástu Björgu Ólafsdóttur húsfreyju og leikskólastjóra.
9. Sveinn Ólafur Ormsson trésmiður í Keflavík, f. 23. júní 1933, kvæntur Önnu Pálu Sigurðardóttur húsfreyju.
10. Gróa Ormsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 13. mars 1936, gift Páli Steinari Bjarnasyni trésmíðameistara.
11. Guðrún Ormsdóttir kennari, húsfreyja í Borgarnesi, síðar á Hvolsvelli, f. 23. ágúst 1938, gift Gísla Kristjánssyni kennara.
12. Árni Einar Ormsson trésmiður í Borgarnesi, f. 27. maí 1940, kvæntur Halldóru Marinósdóttur húsfreyju.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.