Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir
Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir.
Guðrún fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 8. ágúst 1920 og lézt í Reykjavík 22. maí 1978.
Faðir hennar var Ólafur Guðmundur kennari, kaupmaður, bakari og hreppstjóri á Flateyri, f. 30. ágúst 1879, d. 7. maí 1948, Sigurðar formanns, útgerðarmanns, kaupmanns og símstöðvarstjóra á Hrauni í Hnífsdal og á Langeyri í Álftafirði, f. 1860, d. 1950, Þorvarðarsonar og barnsmóður Sigurðar, Elínar Jóhannesdóttur frá Blámýrum í Ögursveit við Djúp, síðar húsfreyju á Hríshóli í Reykhólasveit í Barðastrandarsýslu, f. 1854, d. 1920. Móðir Guðrúnar og kona (25. marz 1917) Ólafs Guðmundar var Valgerður húsfreyja, f. 26. sept. 1893, d. 1. nóv. 1968, Guðmundar bónda að Bakkaseli í Ögursveit, f. 1849, Hafliðasonar og barnsmóður hans, Guðrúnar Sigurðardóttur.
Guðrún lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 30. september 1947, var áður í Húsmæðraskólanum að Laugalandi í Eyjafirði 1944-1945.
Hún var ljósmóðir við Landspítalann 1947-30. september 1949, er hún varð ljósmóðir í Eyjum og því starfi gegndi hún til dánardægurs 1978.
Maki (1. des. 1951): Magnús Þórður bifreiðastjóri, f. 7. maí 1921, d. 17. júlí 1986, Ágústsson yfirfiskimatsmanns á Aðalbóli í Eyjum, f. 22. ágúst 1893, Þórðarsonar og konu Ágústs, Viktoríu Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 22. febrúar 1897.
Börn þeirra Magnúsar Þórðar: Valgerður Ólöf Magnúsdóttir ljósmóðir í Eyjum, f. 23. marz 1953; Magnús Rúnar rafvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur, f. 29. júlí 1956.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Vestfirzkar ættir. Reykjavík: V.B. Valdimarsson, 1959-1968.
- Guðni Jónsson: Bergsætt I. Reykjavík. bls 433.
- Brynleifur Tobíasson: Hver er maðurinn? Reykjavík: Bókaforlag Fagurskinna (Guðmundur Gamalíelsson), 1944.
- Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988.
- Garður.is.