Ástríður Júlíusdóttir (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. ágúst 2023 kl. 11:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. ágúst 2023 kl. 11:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ástríður Júlíusdóttir''' kennari fæddist 7. desember 1960.<br> Foreldrar hennar voru Júlíus Gunnar Þorgeirsson frá Flatey á Breiðafirði, vélstjóri, f. 8. mars 1925, d. 8. apríl 2021, og kona hans Svandís Nanna Pétursdóttir frá Rauðseyjum á Breiðafirði, húsfreyja, f. 10. desember 1925, d. 13. mars 2013. Ástríður lauk kennaraprófi 1984, sótti námskeið í mynd- og handmennt í K.H.Í. 1986.<br> Hún hefur verið kennari í Hamarsskóli Vest...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ástríður Júlíusdóttir kennari fæddist 7. desember 1960.
Foreldrar hennar voru Júlíus Gunnar Þorgeirsson frá Flatey á Breiðafirði, vélstjóri, f. 8. mars 1925, d. 8. apríl 2021, og kona hans Svandís Nanna Pétursdóttir frá Rauðseyjum á Breiðafirði, húsfreyja, f. 10. desember 1925, d. 13. mars 2013.

Ástríður lauk kennaraprófi 1984, sótti námskeið í mynd- og handmennt í K.H.Í. 1986.
Hún hefur verið kennari í Hamarsskólanum í Eyjum frá 1984, aðstoðarskólastjóri 1989-1997, kennari síðan.
Þau Magnús giftu sig 1985, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Áshamar 8.

I. Maður Ástríðar, (17. ágúst 1985), er Magnús Jónasson frá Þórshöfn á Langanesi, skipstjóri, f. 29. apríl 1958.
Börn þeirra:
1. Júlíus Guðjón Magnússon, f. 6. apríl 1987.
2. Elísabet Bára Magnúsdóttir, f. 1. mars 1994. Maður hennar Björn Elvar Steinarsson.
3. Þorfinnur Karl Magnússon véla- og orkutæknifræðingur, f. 2. september 1997. Sambúðarkona hans Freydís Þóra Þorsteinsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ástríður.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.