Guðrún Brandsdóttir (hjúkrunarfræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. ágúst 2023 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. ágúst 2023 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Brandsdóttir (hjúkrunarfræðingur)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Brandsdóttir.

Guðrún Brandsdóttir hjúkrunarfræðingur fæddist 16. október 1902 á Fróðastöðum í Hvítársíðu, Mýr. og lést 10. febrúar 1994.
Foreldrar hennar voru Brandur Daníelsson bóndi, f. 24. júní 1855, d. 4. desember 1936, og kona hans Þuríður Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, f. 3. ágúst 1868, d. 29. maí 1948.

Guðrún lauk hjúkrunarprófi í Frederiksberg Hospital í Danmörku 1. júní 1929, stundaði framhaldsnám á fæðingadeild þar í 2 mánuði 1929.
Hún vann á Kleppsspítala 6. febrúar til 1. september 1930, á Blegdamshospital í Khöfn ágúst 1929-1. febrúar 1930, á Sjúkrahúsinu í Eyjum október 1930-október 1935, Kleppsspítala október 1935-15. apríl 1936, Leichester Royal Infirmary á Englandi maí 1936-maí 1937, Betlem Royal Hospital þar maí 1937-ágúst s. ár, á Kópavogshæli október 1937-október 1938, hjá Barnaverndarnefnd Rvk október 1938-febrúar 1943, Læknavarðstofunni í Rvk febrúar 1943-október 1955, á Slysavarðstofu Rvk frá 15. október 1955.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.