Valgerður Benediktsdóttir (Knarrarhöfn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júlí 2023 kl. 16:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júlí 2023 kl. 16:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Valgerður Benediktsdóttir''' frá Knarrarhöfn við Fífilgötu 8, húsfreyja, bankastarfsmaður fæddist þar 26. maí 1947.<br> Foreldrar hennar voru Benedikt Elías Sæmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 7. október 1907 á Stokkseyri, d. 3. október 2005, og kona hans Rebekka Jónsdóttir frá Rútsstöðum í Öngulsstaðahreppi, Ey., húsfreyja, f. 30. mars 1914, d. 14. apríl 2005. Valgerður var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þei...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Benediktsdóttir frá Knarrarhöfn við Fífilgötu 8, húsfreyja, bankastarfsmaður fæddist þar 26. maí 1947.
Foreldrar hennar voru Benedikt Elías Sæmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 7. október 1907 á Stokkseyri, d. 3. október 2005, og kona hans Rebekka Jónsdóttir frá Rútsstöðum í Öngulsstaðahreppi, Ey., húsfreyja, f. 30. mars 1914, d. 14. apríl 2005.

Valgerður var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Akureyrar.
Hún varð bankastarfsmaður á Akureyri og í Reykjavík.
Þau Þorsteinn giftu sig 1967, eignuðust tvö börn. Þau skildu.

I. Maður Valgerðar, (16. júní 1967, skildu), var Þorsteinn Friðriksson viðskiptafræðingur, skrifstofumaður, aðstoðarlagerstjóri, f. 9. september 1945 á Hálsi í Svarfaðardal, Ey., d. 18. janúar 1997. Foreldrar hans voru Friðrik Magnússon, f. 23. júlí 1916, d. 10. mars 2003, og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja á Hálsi, f. 4. desember 1917, d. 5. janúar 2018.
Börn þeirra:
1. Arnar Þorsteinsson, f. 10. október 1967.
2. Guðrún Björk Þorsteinsdóttir, f. 17. ágúst 1972.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.