Fanney Jónsdóttir (sjúkraþjálfari)
Sigríður Fanney Jónsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, sjúkraþjálfari fæddist þar 1. maí 1946.
Foreldrar hennar voru Jón G. Halldórsson viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri, f. 13. febrúar 1914 á Höfn í Bakkafirði, N.-Múl., d. 17. október 1993, og Sigríður S. Jónsdóttir húsmæðrakennari, starfsmaður Krabbameinsfélagsins í Reykjavík, f. 11. september 1921 á Akureyri, d. 9. febrúar 2014.
Fanney lærði í Skolen for Fysioterpeuter í Kaupmannahöfn 1972.
Hún vann á Borgarspítalanum í Reykjavík 1972-1978, á Sjúkrahúsinu í Eyjum 1978-1992 og á Landspítalanum frá 1993 til starfsloka vegna aldurs.
Þau Sigurður Högni giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau keyptu Jaðar og bjuggu þar, en skildu.
Þau Karl hófu sambúð, en slitu samvistum.
I. Maður Fanneyjar, (skildu), er Sigurður Högni Hauksson frá Vatnsdal, bifvélavirkjameistari, f. 17. janúar 1948.
Börn þeirra:
1. Sigríður Soffía Sigurðardóttir viðskiptafræðingur, vinnur hjá KPMG og er einn af eigendum fyrirtækisins, f. 19. september 1979 í Reykjavík. Sambúðarmaður hennar Bogi Snær Bjarnason.
2. Svava Sigurðardóttir starfsmaður hjá Valitor, f. 11. desember 1980. Sambúðarmaður hennar Lúðvík Brynjólfsson.
II. Sambúðarmaður Fanneyjar (frá 1998, slitu samvistum) var Karl Haraldsson svæfingalæknir, f. 26. febrúar 1946 í Reykjavík, d. 19. október 2018.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigurður Högni.
- Sjúkraþjálfaratal. Ritstjórar: Steingrímur Steinþórsson, Ívar Gissurarson. Mál og mynd 2001.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.