Dalir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 21:49 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 21:49 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón Jónsson við heyskap

Húsið Dalir stendur utan byggðar. Manntal 1892 greinir frá 2 bæjum. Íbúðarhúsið var reist á árunum 1945-1946. Um miðja 20. öldina kúabúskapur mikill á Dalabúi. Um 50 nautgripir voru í búinu og var það stórt á vestmanneyskan mælikvarða.

Árið 1942 afréð bæjarstjórn Vestmanneyja að láta bæinn stofna kúabú til mjólkurframleiðslu. Fengin var til þess ábúð á Dalajörðunum tveim og brátt hafin þar bygging fjóss og hlöðu. Þar var byggt 60 bása fjós og stórar þurrheyshlöður. Hlaðan var 638 rúmmetrar, safnþrær um 300 rúmmetrar og einnig var byggð áburðar og vélahús. Einnig var þar byggð votheyshlaða 113 rúmmetrar. Árið 1944 var mæld hjá því nýrækt 8,5 ha. Áður hafði bæjarfélagið ræktað 4,7 ha. sáðsléttur, og látið rífa upp hundruð rúmmetra af grjóti úr því landi. Fyrsti bústjórinn var ráðinn Ársæll Grímsson, sem síðustu árin hafði haft Dalajarðirnar til ábúðar. Hann stjórnaði búrekstri bæjarins fyrstu tvö árin. Í byrjun maímánaðar 1946 tók Guðjón Jónsson við bústjórninni. Það var að öllu jöfnu 50 mjólkandi kýr og um 10-12 geldneiti á búinu. Mjólk sú er framleidd, var flutt daglega í sjúkrahús bæjarins, í elliheimili hans og barnaheimili. Það sem afgangs var þörfum þessara stofnana var selt í verzlun er bærinn lét reka. Eftir að Mjólkursamsalan hóf verslun með mjólkurvörur í Eyjum árið 1954 fékk bærinn að selja sína mjólk þar. Árið 1962 seldi kaupstaðurinn Dalabúið úr eigu sinni.

Ábúendur


Heimildir