Árni Þórarinsson (Eystri Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. september 2006 kl. 13:23 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. september 2006 kl. 13:23 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Þórarinsson, Oddsstöðum, fæddist að Fossi í Mýrdal 25. maí 1896 og lést 18. janúar 1982 í Kópavogi. Foreldrar hans voru Þórarinn Árnason og Elín Pálsdóttir. Árið 1908 flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja. Einn sona Árna var Oddur Árnason og ólu Árni og konan hans upp sonarson sinn, Árna Oddsson.

Árið 1915 byrjar Árni sjómennsku á Gideon hjá Eyvindi Þórarinssyni bróður sínum. Árni tók við formennsku á Goðafossi árið 1917 og var hann með hann til vertíðarloka ársins 1925.

Árni var aflakóngur Vestmannaeyja 1918, 1920 og 1926.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.