Halldór Eyjólfsson (Sunnuhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. október 2022 kl. 13:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. október 2022 kl. 13:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Halldór Eyjólfsson (Sunnuhlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Eyjólfsson frá Ráðagerði í Oddasókn, verkamaður, vélstjóri, verkstjóri fæddist þar 16. júní 1892 og lést 16. september 1972.
Foreldrar hans voru Eyjólfur Ólafsson bóndi á Ytri-Sólheimum í Mýrdal og víðar, f. þar 2. júní 1848, d. 10. maí 1935 í Eyjum, og kona hans Guðrún Einarsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1867 á Lýtingsstöðum í Marteinstungusókn, d. 8. október 1896 á Ytri-Sólheimum.

Halldór var með föður sínum, kom með honum að Suður-Fossi í Mýrdal 1893, með honum þar til 1894, hjá honum á Ytri-Sólheimum 1894-1896, tökubarn á Höfðabrekku 1896-1897, hjá föður sínum á Ytri-Sólheimum 1897-1901, tökubarn á Haugnum 1901-1902, hjá föður sínum 1910.
Halldór flutti til Eyja 1920.
Hann lærði vélstjórn.
Hann var sjómaður og járnsmiður í Steini við Vesturveg 10 1920, í Sunnuhlíð 1927, síðar verkamaður, vélstjóri í Ísfélaginu.
Þau Viktoría giftu sig 1926, bjuggu í Sunnuhlíð við Vesturveg 30.

I. Kona Halldórs, (6. október 1926), var Viktoría Jónsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, f. 29. desember 1903, d. 26. október 1995.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.