Heitiklettur
Rétt norðan og austan við Þorlaugargerði eystra er Heitiklettur en þar er hitauppstreymi er veldur því að oft er snjólaust á vetrum við klettinn. Ekki er þó um eiginlegan jarðhita að ræða heldur loft er streymir upp úr neðri jarðlögum sem eru heitari en yfirborðið og bræðir snjó sem fyrir er.