Magnús Tómasson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 15:00 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 15:00 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Tómasson fæddist á Hrútafelli undir Eyjafjöllum 28. desember 1876 og lést 22. september 1941. Ungur kom hann til Vestmannaeyja og var upphaflega háseti hjá Magnúsi Guðmundssyni á Vesturhúsum. Árið 1906 keypti hann Elliða og var formaður á honum til 1912. Þá hætti hann formennsku og gerðist bóndi.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Magnús:

Maggi þéttur flóðs í fang
færir trillu greiða,
strangan þegar straumavang
stefnir einn til veiða.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.