Guðvarður Vilmundarson
Guðvarður Vilmundarson fæddist 29. mars 1912 og lést 31. janúar 1984. Hann bjó á Heiðarvegi 44 um miðbik 20. aldarinnar. Guðvarður bjó á Sauðárkróki þegar hann lést.
Guðvarður var skipstjóri á flutningaskipinu Helga Helgasyni.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðvarð:
- Varða græðis garp ég fann
- giftu meður næga,
- Helga leiðir Hafs um rann
- Helgasoninn fræga.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.