Guðvarður Vilmundarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðvarður Vilmundarson og fjölskylda

Guðvarður Vilmundarson fæddist 29. mars 1912 og lést 31. janúar 1984. Hann bjó á Hásteinsvegi 49 um miðbik 20. aldarinnar. Guðvarður bjó á Sauðárkróki þegar hann lést. Guðvarður Vilmundarson skipstjóri á b/v Bjarnarey VE 11, 1948-1949 Stýrimaður 1950. Skipstjóri á Helga Helgasyni á togveiðum 1951. Átti og gerði út m/s Vaðgeir VE 7, (ez Þráinn VE 7, ex Narfi EA) 1953. Flutti til Eyja frá Hafnarfirði vorið 1948, og frá Vestmannaeyjum 1953-4.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðvarð:

Varða græðis garp ég fann
giftu meður næga,
Helga leiðir Hafs um rann
Helgasoninn fræga.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.