Aðalsteinn Gunnlaugsson
Aðalsteinn Gunnlaugsson fæddist 14. júlí 1910 og lést 27. febrúar 1991. Hann bjó á Vesturvegi 3b og Hólagötu 15. Bræður Aðalsteins voru Arnoddur og Elías.
Aðalsteinn var formaður á mótorbátnum Lagarfoss.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Aðalstein:
- Heppinn sækir hafs á reit
- hann Gjábakka Alli,
- gætinn vel á gýmis sveit,
- gjöll þótt Lagga skralli.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Bræðra nú þáttskal þræða,
- þrjár má ég vísur pára.
- Elztur er Aðalsteinn helztur,
- yggurinn Gunnlaugs dyggur.
- Veiðir sá garpur greiður,
- græðis þó hamist flæður.
- Stýrir Atla órýrum
- ágætis drengurinn mætur.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.