Guðjón Kristinsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 10:19 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 10:19 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Kristinsson fæddist 29. nóvember 1917 og lést 28. mars 1975. Hann bjó á Urðavegi 17 og síðar á Vesturvegi.

Guðjón var skipstjóri og útgerðamaður.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðjón:

Kristinsson Guðjón gistir
glæstum á bakka næsta.
Jón Stefáns lætur lóna
laginn um æstan sæinn.
Stórhúga stýris-Þórinn
stífur inn þorskinn drífur,
frökk þó að Rán í rökkri
rökk hýði fríðan nökkva.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.