Hjálmholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 09:56 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2006 kl. 09:56 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Hjálmholt stóð við Urðarveg 34. Það var reist af Ingibergi Hannessyni á árunum 1910-12. Ingibergur var ævinlega nefndur Bergur í Hjálmholti og þótti hafa mjög róttækar stjórnmálaskoðanir. Hjálmholt var tvíbýlishús og þegar gaus bjuggu í eystri hlutanum Ólafur, sonur Ingibergs, ásamt konu sinni Eyrúnu Huldu Marinósdóttur og syni þeirra. Í vestari hlutanum bjuggu, þegar gaus, Ólöf Sigvaldadóttir og Sigurlaug Þorsteinsdóttir.