Johannes Frahm verslunarstjóri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. febrúar 2022 kl. 13:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. febrúar 2022 kl. 13:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Johannes Frahm verslunarstjóri í Garðinum, síðar bóndi í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, fæddist 2. ágúst 1800 í Danmörku og lést 24. október 1851 í Hólmahjáleigu.
Foreldrar hans voru Johannes Frahm stýrimaður í Christianashavn í Kaupmannahöfn, f. 1773 í Abenra, d. 1848, og Anne Marie Norup Frahm, f. 1779.

Johannes fluttist til Eyja frá Kaupmannahöfn 1839 með konu sinni Mariane Dorothea og 4 börnum þeirra.
Hann var verslunarstjóri í Danskagarði 1839-1843 og bjó í Kornhól.
Hjónin skildu. Konan fór úr Eyjum með börnin 1841. Hann hætti störfum í Garðinum og fluttist að Bakka í Landeyjum, var þar húsmaður 1843-1846, en bjó með Katrínu í Hólmahjáleigu 1846-dd. 1851.

I. Kona hans, (skildu), var Mariane Dorothea Kaspersen Frahm, f. 10. mars 1805 í Kaupmannahöfn. Börn þeirra:
1. Carl Johannes Frahm, f. 1827, var í Kornhól, á lífi 1853.
2. Hans Jochum Frahm, f. 1833, á lífi 1853.
3. Marie Dorothea Frahm, f. 19. maí 1829, var í Kornhól, á lífi 1853.
4. Anne Emilie Frahm, f. 12. september 1830, var í Kornhól, á lífi 1853.
5. Ludvig Valdemar Frahm, f. 1831, var í Kaupmannahöfn 1845.
6. Hans Jochum Frahm, f. 1833, var í Kornhól, á lífi 1853.
7. Jörgen Frahm, f. 8. apríl 1836.
8. Peter Emil Frahm, f. 9. maí 1838, var í Kornhól, á lífi 1853.
Barn fætt í Eyjum:
9. Jens Jacob Benedictsen Frahm, f. 2. júlí 1840, var í Kaupmannahöfn 1845, í Kornhól 1840, á lífi 1853.

II. Bústýra hans og barnsmóðir var Katrín Halldórsdóttir, áður vinnukona í Kornhól, síðar húsfreyja í Hólmahjáleigu og á Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum, f. 13. mars 1816, drukknaði 14. apríl 1869.
Börn þeirra voru:
10. Þorgerður Jóhannesdóttir, f. 1. júlí 1847, d. 9. júní 1851.
11. Christian Jóhannesson, f. 27. október 1848, d. sama dag.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Magnús Haraldsson.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.