Kristján Magnússon (verslunarstjóri)
Kristján var verslunarstjóri, fæddur 1839 að Nýjabæ og lést árið 1865. Foreldrar Kristjáns voru Skaftfellingar.
Kristján var verslunarstjóri við Godthaabsverslun til ársins 1862. Hann var dugnaðarmaður og enginn átti meiri skipakost í Eyjum á þeim tíma.
Við andlát Kristjáns fluttist kona hans, sem var dönsk, aftur til Kaupmannahafnar með tvo syni þeirra hjóna. Annar þeirra, Christian að nafni, varð þekktur maður í Danmörku sem forstjóri margra vátryggingafélaga í Kaupmannahöfn.
Heimildir
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962.