Júlíus Sigurðsson (Skjaldbreið)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 11:22 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 11:22 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Júlíus Sigurðsson, Skjaldbreið, fæddist í Vestmannaeyjum 2. júlí 1912 og lést 1. október 1974. Foreldrar hans voru Sigurður Ingimundarson og Hólmfríður Jónsdóttir. Júlíus var kvæntur Jakobínu Jónsdóttur frá Ólafsfirði og eignuðust þau 8 börn.

Ungur hóf Júlíus sjómennsku með föður sínum sem var kunnur formaður í Eyjum. Formennsku hóf Júlíus á Blika árið 1930. Eftir það var Júlíus meðal annars með Þorgeir Goða, Gullþóri og . Eftir að Júlíus hætti sjómennsku vann hann sem vigtarmaður hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja. Júlíus starfaði mikið með skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi og var formaður þar í fjögur ár.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.