Kirstín Sylvía Lárusdóttir Sveinbjörnsson
Kristín Sylvía Lárusdóttir Sveinbjörnsson frá Húsavík, S.-Þing., húsfreyja í Godthaab fæddist 13. nóvember 1869 og lést 10. apríl 1898 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Lárus (Lauritz) Edvard Sveinbjörnsson, sýslumaður, dómstjóri í landsyfirdómi, alþingismaður, f. 31. ágúst 1834 í Reykjavík, d. 7. janúar 1910, og Kona hans Jörgine Margrethe Sigríður Thorgrímsen húsfreyja, f. 25. apríl 1849 á Eyrarbakka, d. 6. desember 1915.
Þau Magnús giftu sig 1897, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Godthaab. Kristín Sylvia lést tæpri viku eftir barnsburðinn.
I. Maður hennar, (18. júní 1897), var Magnús Jónsson frá Laugabóli í Nauteyrarhreppi, Ís., f. 27. desember 1865, d. 27. desember 1947.
Barn þeirra:
1. Lauritz Edvard Sveinbjörnsson Magnússon, sjúklingur stærstan hluta ævi sinnar, f. 5. apríl 1898 í Godthaab, d. 23. nóvember 1959 í Reykjavík.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.