Nöjsomhed
Húsið Nöjsomhed stóð við Víðisveg 7. Samkvæmt manntalinu 1892 var þetta timburhús sem Bolbroe læknir byggði árið 1833. Þar bjó Aagastd sýslumaður 1875. Þetta var pakkhús frá Brydeversluninni og stóð það austan við Jónsborg . Þetta var einnig fyrsta húsnæðið til að hýsa fyrsta Barnaskólann í Vestmannaeyjum. Seinna reis á lóðinni Stafholt.