Sigurjón Óskarsson (skipstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 10:15 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 10:15 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Óskarsson fæddist í Vestmannaeyjum 3. maí 1945. Hann er sonur hjónanna Þóru Sigurjónsdóttur og Óskars Matthíassonar. Sigurjón er kvæntur Sigurlaugu Alfreðsdóttur og eiga þau 3 börn.

Sigurjón ólst upp við sjómennsku og útgerð þar sem faðir hans var skipstjóri. Þegar Sigurjón var 17 ára gamall fór hann fyrst til sjós. Sigurjón varð formaður árið 1972 og var hann strax aflamikill.

Sigurjón hefur verið afla- og fiskikóngur Vestmannaeyja 11 sinnum á 19 árum.


Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1974.