Ólafur Jónsson (Skála)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:05 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 15:05 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ólafur Jónsson


Ólafur Jónsson, Skála, fæddist að Hvammi undir Eyjafjöllum 21. september 1897. Ólafur fór ungur til Eyja með foreldrum sínum, Jóni Auðunssyni og Sigríði Ólafsdóttur að Skála og ólst þar upp.

Ólafur fór strax og aldur leyfði til sjóróðra í Vestmannaeyjum og var þar fljótlega vélamaður hjá Þorsteini Jónssyni í Laufási á Unni III en árið 1938 tók Ólafur við formennsku á Unni því þá lét Þorsteinn af formennsku. Ólafur var einnig formaður á Ástdísi og Hjálpara.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.