Jórunn Sigurðardóttir (Löndum)
Jórunn Sigurðardóttir vinnukona á Löndum, fæddist 24. nóvember 1881 á Lágafelli í A-Landeyjum og lést á Sjúkrahúsinu 8. júlí 1965.
Foreldrar hennar voru Sigurður Guðmundsson bóndi á Lágafelli í A-Landeyjum, síðar dvalarmaður á Uppsölum f. 13. ágúst 1842, d. 11. mars 1905 á Uppsölum í Eyjum og kona hans (15. maí 1873, skildu), Þórunn húsfreyja, f. 18. október 1839, d. 25. maí 1899, Sigurðardóttir.
Jórunn var 8 ára með móður sinni, fráskilinni vinnukonu, í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni) 1890.
Við manntal 1910 var hún skráð hjú á Löndum, en var fjarverandi á Eskifirði.
Jórunn var síðan vinnukona hjá hjónunum á Löndum, þeim Elínu Þorsteinsdóttur og Friðriki Svipmundssyni þeirra búskap, fylgdi síðan Elínu og var síðast með Friðriki og Erlu, uns hún var lögð inn á Sjúkrahúsið öldruð, og þar lést hún 1965.
„Hún fylgdi þrem barnakynslóðum stór-fjölskyldunnar, - pabba og systkinum hans, okkur systkinum og börnum okkar Erlu,“ sagði Friðrik.
Minningarljóð þetta birtist í Morgunblaðinu 1965.
Jórunn Sigurðardóttir frá Löndum — minning
Fædd 24. nóvember 1881 að Lágafelli í Landeyjum.
Dáin 8. júlí 1965.
- Yfir Fljótshlíð flæðir
- funi morgunglóðar,
- bjarminn kostum klæðir
- konur æsku rjóðar.
- Langt í suðri synda
- sjónum fyrir meyjar,
- hafs við himinlinda,
- hlýjar Vestmanneyjar.
- Yfir Fljótshlíð flæðir
- Þangað leiðir lágu,
- lífið hló við svanna,
- studd af feti fráu,
- fús til átakanna.
- Brátt var hafizt handa,
- hér var gott að una
- sæl, og vaxin vanda
- virti hamingjuna.
- Þangað leiðir lágu,
- Hlýju kærleiks hlaustu
- á heimilinu merka.
- Anna og næðis naustu,
- næm til góðra verka.
- Þarna blessuð börnin
- barst, og við þau ræddir.
- Þeim var þekkust vörnin
- þegar áföll græddir.
- Hlýju kærleiks hlaustu
- Þakka vinir vilja
- verkin þinna handa.
- Öll þín kynnin ylja
- og í minning standa.
- Svo við lokin leiðar
- ljóminn þakti velli
- fann sér götur greiðar
- geisli að Helgafelli.
- Þakka vinir vilja
- Þú varst trygglynd, trúuð
- traustvekjandi kona.
- Elfan breiða er brúuð —
- bar þér fylling vona.
- Víst þig vinir trega!
- Von til Guðs er bundin.
- Hann þér vel til vega
- vísi, í dýrðarlundinn.
- E.J.E
- Þú varst trygglynd, trúuð
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Friðrik Ásmundsson.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 14. október 1965.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.