Karl Þór Þorkelsson
Karl Þór Þorkelsson frá Presthúsum, útvarpsvirki í Reykjavík fæddist 15. október 1939 í Presthúsum og lést 8. júní 2010.
Foreldrar hans voru Þorkell Guðlaugur Sigurðsson frá Njarðvík á Borgarfirði eystra, vélstjóri, járnsmiður, f. 16. janúar 1913, d. 25. desember 1998, og Rakel Káradóttir frá Presthúsum, húsfreyja í Reykjavík, f. 4. september 1917, d. 10. ágúst 1980.
Börn Rakelar og Þorkels:
1. Karl Þór Þorkelsson útvarpsvirki í Reykjavík, f. 15. október 1939 í Presthúsum, d. 8. júní 2010.
2. Sigurður Þorkelsson vélvirki hjá Marel hf., f. 19. september 1943 í Presthúsum.
Karl Þór var með foreldrum sínum í Presthúsum, fluttist með þeim til Reykjavíkur í lok fimmta áratugarins. Rakel móðir hans var berklaveik og faðir hans sjómaður og því var Karl Þór í fóstri hjá vinafólki á Voðmúlastöðum í Landeyjum, Sigríði Guðmundsdóttur ekkju og húsfreyju og börnum hennar.
Að loknu gagnfræðaprófi nam Karl Þór útvarpsvirkjun og vann við iðn sína í nokkur ár á Selfossi og í Reykjavík. Hann vann lengi hjá Ríkissjónvarpinu.
Þau Sigrún giftu sig 1961, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Karl Þór bjó með Aðalheiði Rut Önundardóttur.
Hann lést 2010.
I. Kona Karls Þórs, (17. júní 1961, skildi), var Sigrún Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1940.
Börn þeirra:
1. Þóra Guðrún Karlsdóttir, f. 3. mars 1972.
2. Örvar Karlsson, f. 14. febrúar 1973.
II. Sambýliskona Karls Þórs var Aðalheiður Rut Önundardóttir, f. 9. nóvember 1972.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 19. júní 2010. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.