Þórarinn Guðmundsson (Jaðri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:38 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:38 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórarinn Guðmundsson fæddist í Frydendal í Vestmannaeyjum 13. janúar 1893 og lést 30. maí 1975. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson og Málfríður Erlendsdóttir. Árið 1915 tók Þórarinn við formennsku á Gústaf (9,19 tonn). Eftir það var hann formaður á ýmsum bátum til 1940.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þórarinn:

Glöggur á veðra og græðisfar
greindur og snar í orðum
Þórarinn Helgur úr kvikum mar
hleður að efstu borðum.

Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1995.