Ásmundur Friðriksson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 13:16 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 13:16 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ásmundur Friðriksson fæddist 31. ágúst 1909 og lést 17. nóvember 1963. Ásmundur var sonur Friðriks Svipmundssonar og Elínar Þorsteinsdóttur. Þau bjuggu nær allan sinn búskap að Löndum í Vestmannaeyjum. Árið 1934 kvæntist Ásmundur fyrri konu sinni Elísu Pálsdóttur og eignuðust þau tvö börn, Friðrik og Elínu Hólmfríði. Hún lést árið 1945. Síðari kona Ásmundar var Þórhalla Friðriksdóttir og eignuðust þau tvö börn.

Ásmundur fór að loknu barnaskólanámi í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist með góðri einkunn. Eftir það fór hann á sjóinn og var meðal annars á skipstjóri á Friðþjófi, Sjöstjörnunni og Keflvíking.

Eftir að hann kom í land þá gerðist hann forstjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur og stofnaði síðar eigið fyrirtæki, Söltun hf. Ásmundur lést á heimili sínu í Keflavík, aðeins 54 ára gamall.

Loftur Guðmundsson samdi formannsvísu um Ásmund:

Ásmundur frá öllum ber
orðstír gætni og dáða
á Sjöstjörnunni um votan ver
völd hans gæfu ráða.

Heimildir

  • G.S. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1964.