Logar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2006 kl. 15:29 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2006 kl. 15:29 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hljómsveitin Logar var stofnuð í Vestmannaeyjum árið 1964. Upphaflegu meðlimir hljómsveitarinnar voru Grétar Skaptason, Helgi Hermannsson, Henry A. Erlendsson, Hörður Sigmundsson og Þorgeir Guðmundsson.

Sveitin náði strax miklum vinsældum í Vestmannaeyjum og spilaði hverja helgi í Samkomuhúsinu auk þess sem dansleikir voru stundum haldnir á virkum dögum. Vinsældir sveitarinnar bárust fljótlega til fastalandsins og árið 1974 rokseldu Logar hljómplötuna Minning um mann.

Á fertugsafmæli hljómsveitarinnar árið 2004 var hljómsveitinni veitt gullplata því platan Minning um mann seldist í 18 þúsund eintökum.


Heimildir

  • Fréttablaðið. 11. september 2004, bls. 18.