Minning um mann
Fara í flakk
Fara í leit
- Nú ætla ég að syngja ykkur lítið fallegt ljóð
- um ljúfan dreng, sem fallinn er nú frá,
- um dreng sem átti sorgir en ávallt samt þó stóð
- sperrtur þó að sitthvað gengi á.
- Í kofaskrifli bjó hann, sem lítinn veitti yl,
- svo andvaka á nóttum oft hann lá.
- Þá Portúgal hann teygaði, það gerði ekkert til,
- það tókst með honum yl í sig að fá.
- Viðlag:
- Þið þekktuð þennan mann,
- þið alloft sáuð hann,
- drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
- Börnum var hann góður, en sum þó hræddust hann,
- hæddu hann og gerðu að honum gys.
- Þau þekktu ei litlu greyin þennan mæta mann,
- já, margt er það sem börnin fara á mis.
- Munið þið að dæma ei eftir útlitinu menn,
- en ýmsum yfir þessa hluti sést.
- Því til er það að flagð er undir fögru skinni enn
- en fegurðin að innan þykir best.
- Nú ljóðið er á enda um þennan sómasvein,
- sem að þráði brennivín og sæ.
- Hann liggur nú á kistubotni og lúin hvílir bein,
- í kirkjugarði í Vestmannaeyjabæ.
Lag og texti: Gylfi Ægisson