Sigurður Sigurðsson (Lögbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 09:35 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 09:35 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður fæddist 27. júlí 1883 og lést 25. janúar 1961.

Sigurður ólst upp í Fljótshlíð en byggði húsið Lögberg í Vestmannaeyjum árið 1912. Þar hóf hann búskap með Sigríði Jónsdóttur frá Seljalandi. Hún lést árið 1923 frá sex börnum þeirra.

Sigurður var vélstjóri á vélbát sem hann var átti ásamt Vigfúsi Jónssyni frá Holti. Þann bát misstu þeir árið 1928. Eftir það st arfaði Sigurður við smíðar en hann hafði lært trésmíði á yngri árum.

Sigurður lenti í fjárhasörðugleikum rétt fyrir seinni heimsstyrjöldina og varð að láta húsið sitt, Lögberg. Hann festi því kaup á húsinu Vallarnes við Heimagötu, byggði við það og bjó þar það sem eftir var.


Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1961.