Bjarni Gíslason
Bjarni Gíslason fæddist 1875. Bjarni gerðist formaður þegar hann var 18 ára, en kom til Eyja árið 1913 þegar hann var formaður með Ásdísi fyrir Gísla J. Johnsen sem þá var stærsti báturinn í Eyjum. Eftir það var hann með Báru fyrir Ingvar Pálmason alþingismann.
Hann var með þann bát til dauðadags því á honum fórst hann þann 11. júní 1915.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. 2 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.