Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1972/ Áralag

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. febrúar 2018 kl. 13:30 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. febrúar 2018 kl. 13:30 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big><center>Áralag</center></big></big><br> ''Brunar skeið á báruföldum,''<br> ''brims í volki flestan dag,''<br> ''horskir drengir hreyfiaflið''<br> ''hnýta í sama st...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Áralag


Brunar skeið á báruföldum,
brims í volki flestan dag,
horskir drengir hreyfiaflið
hnýta í sama stuðlabrag,
sem lífs af hvöt er köllun knúin,
en kvæðið heitir ÁRALAG.

Innanborðs sjást störfin stunduð,
stjórnin örugg, laus við gum.
Vinnur hver með vilja og festu,
- vottur trausts er ekki skrum.
Rúm eru skipuð ráðsnillingum,
- ræðurum með ekkert furn.

ÁRALAGIÐ okkur kenni
eining, þrótt og bræðralag.
Markviss átök huga og handar
hefji' og göfgi þjóðarbrag.
Þjóðmenning og þjóðarsómi
þroskist og vorn treysti hag.