Bergur Elías Ágústsson
Bergur Elías Ágústsson er fæddur 7. júlí 1963. Bergur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur Ágústs Bergssonar og Stefaníu Guðmundsdóttur úr Skuld. Bergur hóf nám við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Eftir verslunarpróf frá skólanum fór hann til Danmerkur á kristilegan lýðháskóla. Svo lauk hann stúdentsprófi og fór til Noregs í háskóla. Þar lauk hann mastersnámi í líffræði og hagfræði. Hann ílengdist í Noregi og fékkst við störf og frekara nám. Eftir heimkomu til Íslands fékk hann starf á Seyðisfirði, áður en hann kom aftur til Eyja.
Bergur var ráðinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum árið 2003 þegar nýr meirihluti Vestmannaeyjalistans og Framsóknarflokksins tók við völdum. Bergur var bæjarstjóri til ársins 2006. Í bæjarstjóratíð Bergs kom hann til leiðar fjölgun ferða Herjólfs, byggingu nýs leikskóla Sóla ásamt því að koma upp fullkomnu upplýsingarkerfi Vestmannaeyjabæjar.