Vigfús Sigurðsson (Pétursborg)
Vigfús Sigurðsson, Pétursborg, fæddist 24. júlí 1893. Árið 1908 fluttist Vigfús til Vestmannaeyja með foreldrum sínum, Sigurði Vigfússyni og Ingibjörgu Björnsdóttur. Bjó hann í Pétursborg með fjölskyldu sinni. Hann kvæntist Jónu Guðríði Vilhjálmsdóttur. Þau bjuggu að Bakkastíg 3 og áttu tvær dætur, Ástu og Láru.
Vigfús byrjaði ungur sjómennsku og árið 1920 hóf hann formennsku á Blíð. Eftir það er hann með Gústaf, Kap og fleiri báta fram yfir 1930. Eftir það hætti Vigfús formennsku og stundaði útgerð í nokkur ár.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.