Torfi Einarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2006 kl. 08:25 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2006 kl. 08:25 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Torfi Einarsson, Áshól, fæddist 17. janúar 1889 að Varmahlíð undir Eyjafjöllum og lést 30. október 1960. Kona hans var Katrín Ólafsdóttir úr Mýrdal. Þau áttu fjögur börn, en Katrín lést þegar þau öll voru ung. Það féll því í hendur Torfa að ala upp börnin. Börnin voru Ása, Einar, Björgvin og Þórarinn. Þórarinn var sá eini sem ílengdist í Eyjum, hin fluttu til Reykjavíkur.

Hann hóf 15 ára sjómennsku frá Eyjafjallasandi. Árið 1912 fór Torfi til Vestmannaeyja og var þar sjómaður á hinum ýmsu bátum þar til hann hóf formennsku á Erni. Eftir það er Torfi formaður á Happasæl, Ingólfi og Gammi allt til ársins 1940. Torfi var dugmikill og vann eftir því sem þurfti í landi eða á sjó.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.