Friðrik Svipmundsson
Friðrik Svipmundsson Löndum var fæddur að Loftsölum í Mýrdal 15. apríl 1871 og lést 1935. Hann kom til Vestmannaeyja 1893 og reri með Gísla Lárussyni á Friði. Um aldamótin 1900 gerðist hann formaður og var fljótt aflasæll. Hann var með vertíðarskipið Ísafold
Árið 1906 kaupir hann Friðþjóf og er formaður á honum til 1912. Þá kaupir hann Örn og er á honum til 1920. Eftir það er hann formaður á ýmsum bátum til 1930.
Friðrik var aflakóngur þrisvar sinnum.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.