Bjarni Bjarnason (Hoffelli)
Bjarni Bjarnason, Hoffelli, fæddist 15. maí 1885. Bjarni kom ungur til Vestmannaeyja á sjóróðra. Árið 1913 byrjaði Bjarni formennsku á Narónu og er síðan formaður þar og með Hauk fram yfir 1920. Bjarni drukknaði við Eiðið í Vestmannaeyjum 16. desember 1924.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.