Bergsteinn Bergsteinsson
Bergsteinn Bergsteinsson var fæddur á Tjörnum undir Eyjafjöllum 16. október 1877. Bergsteinn byrjaði sjómennsku ungur. Bergsteinn var formaður á Farsæl og var sá bátur annar hæsti bátur í Vestmannaeyjum árið 1911.
Þann 27. desember 1911 fór vélamaðurinn á Farsæl að sækja Bergstein upp að Fjallasandi. Í þeirri ferð fórst Farsæll svo Bergsteinn var bátlaus. Réðist hann þá sem formaður á Ísland en 12. apríl 1912 fórst Bergsteinn við sjötta mann á þeim báti.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.