Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2005/Trani í Görn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2017 kl. 09:28 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2017 kl. 09:28 eftir Vpj1985 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Valdimar Tranberg Jakobsson,


Trani í Görn


F. 25.10.1900 - D. 9. 4.1968
Hilmir Högnason
Valdimar Tranberg á trillu sinni Tý VE 307


Um kapteininn Tranberg ég kveða vil brag karlinn
svo hýran og glettinn. Hann undi á sjónum hvern
einasta dag sem almættið gaf fyrir Klettinn.


Hann trúði á trillunnar völundarsmíð og treysti á
mátt sinn og megin. Hann setti í þorskinn við Breka
og Svið og sönglaði, björginni feginn.


Húskvarnabyssan í skutrúmi stóð og starði svo
bráð eftir veiði. Skyttan í skyndingu hólkinn
sinn hlóð svo skotglaður innan við Eiði.


Hæfði í skotinu skarfana tólf,svartfugl og súlu og
blika. Karl var nú glaður með full fiskihólf og fékk
sér í pípu án hika.


Begga í fjörunni bónda síns beið, svo broshýr er
kom hann að landi, með brúsa af brennheitu kaffi
og sneið af brauði frá Rikka á Sandi.


Hilmir Högnason frá Vatnsdal.