Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2005/Trani í Görn
Fara í flakk
Fara í leit
- Um kapteininn Tranberg ég kveða vil brag
- karlinn svo hýran og glettinn.
- Hann undi á sjónum hvern einasta dag
- sem almættið gaf fyrir Klettinn.
- Hann trúði á trillunnar völundarsmíð
- og treysti á mátt sinn og megin.
- Hann setti í þorskinn við Breka og Svið
- og sönglaði, björginni feginn.
- Húskvarnabyssan í skutrúmi stóð
- og starði svo bráð eftir veiði.
- Skyttan í skyndingu hólkinn sinn hlóð
- svo skotglaður innan við Eiði.
- Hæfði í skotinu skarfana tólf,
- svartfugl og súlu og blika.
- Karl var nú glaður með full fiskihólf
- og fékk sér í pípu án hika.
- Begga í fjörunni bónda síns beið,
- svo broshýr er kom hann að landi,
- með brúsa af brennheitu kaffi og sneið
- af brauði frá Rikka á Sandi.
- Hilmir Högnason frá Vatnsdal.