Magnús Jakobsson
Magnús Jakobsson, Skuld, fæddist 16. september 1903 í Breiðuhlíð í Mýrdal. Árið 1926 fluttist hann til Vestmannaeyja og var háseti á Síðuhalli hjá Guðjóni Valdasyni og síðar vélamaður. Formennsku hóf hann á Skallagrími árið 1940 og er Magnús með hann í áratug. Eftir það hætti Magnús sjómennsku og fór að stunda vélasmíði.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.