Kjói
Kjói svipar til máfa í vexti og er miðlungs stór. Fullorðinn kjói vegur um 350- 450 grömm. Kjóinn hefur tvö litaafbrigði sem eru ekki tengd við kyn eða aldur. Það eru annars vegar aldökkir kjóar og hins vegar skjóttir kjóar. Aldökki kjóinn er í sumarbúningi dökkbrúnn að ofan en mun ljósari að neðan. Á höfði þeirra er svört hetta sem nær niður að augum þeirra og aftur að hnakkanum. Skjótti kjóinn er í sumarbúningi hvítur að neðan og með hvítan eða gulhvítan hálskraga. Á stjélfjöðrum er fuglinn grábrúnn. Það sem einkennir þennan fugl er stélið en tvær miðfjaðrir þess eru miklu lengri en hinar fjaðrirnar.