Sigurður Oddsson (Skuld)
Sigurður Oddsson, Skuld, fæddist 28. mars 1880 á Krossi í Landeyjum. Árið 1900 fer Sigurður til Vestmannaeyja og er þá háseti á Bergþóru hjá Magnúsi í Dal en árið 1908 kaupir Sigurður Björg ásamt fleirum og er háseti á henni til 1910. Þá byrjar hann formennsku á Kapítólu. Tveimur árum síðar kaupir hann Baldur og var formaður þar til 1923.
Sigurður lést 10. maí 1945.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.