Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1959/ Minnisstæðar sjóferðir
Valdimar Árnason er fæddur 13. júlí 1885 og verður því 71 ára eftir miðsumar n. k. Kom fyrst til Eyja á vertíð 1907, þá búinn að vera við sjó nokkur ár eystra. Hér hefur hann svo eytt ævistarfi sínu, ávallt til sjós, vélstjóri eða formaður.
Valdimar (Valdi í Vallanesi) ber aldurinn vel og vinnur hvern dag, eftir að hafa verið á sætrjánum meira en 1/2 öld, síðast á v.s. Skaftfellingi 1958. Geðprúður og ungur í anda, eru einkenni Valdimars enn þann dag í dag, þrátt fyrir háan aldur og reynslukafla í lífinu.
Ritstj.
Efirfarandi atburður kom fyrir er Valdimar Arnason var formaður á v. b. Hlíf, V. E. 166, 9 tonna bát með 12 HK tveggja cyl. Danvél. Eigendur v.b. „Hlífar“ voru þeir Þórarinn sál. Gíslason Lundi og Kristinn Ingvarsson. Eftir lát Kristins 1918 var Valdimar formaður eina vertíð. Áhöfnin var 6 menn og veitt á línu og í net.
Um mánaðamótin marz—apríl, nokkru eftir að netavertíð hófst, réri Hlíf með þrjár 10 neta trossur. Ein var við Mannklakkinn, önnur við Kúgsklakk og sú þriðja inn af Álbrúninni á 20 föðmum. Vitjað var um daglega eins og tíðkast. 29. marz var róið í blíðalogni, en miklum útsunnan sjó og brimi. Dimmur bakki var í suðri og vestri. Haldið var að Kúgsklakk og netin dregin. Þar sem lítill fiskur var í netunum og ljótt útlit, þá ákvað Valdimar formaður að allt skyldi látið í lest, fiskur og veiðarfæri. Truflun varð í drættinum, þar sem kælivatnsrör bilaði, sem gert var við úti í sjó. Síðan er trossan var komin inn, var haldið inn fyrir Ál. Braut þá út á 15 faðma og öll grunnbrot uppi. Dráttur hófst og gekk greiðlega eftir aðstæðum. Biksvartur óveðursbakkinn í S. V. nálgaðist og var því betra að hafa hraðann á. Er 8 1/2, net höfðu verið innbyrt, þá skall veðrið á sem skothvellur, með afspyrnuroki og sædrifi. Valdimar skipaði svo fyrir að þegar skyldi skorið á, en spurt var á móti hvort ekki ætti að draga að skilum. Klára netið. Skerið á undir eins, var svar Valdimars.
Vélin var sett á fulla ferð áfram og stefna tekin á Eyjar. En hvað? Stefnan hélt ekki, heldur sló bátnum flötum fyrir sjó og vindi, þrátt fyrir ýtrasta álag vélarinnar. Þessa vertíð var Sigvaldi Þorsteinsson vélstjóri á Hlíf. (Bróðir Helga Þorsteinssonar vélstjóra í H. 30.). Valdimar bauð Sigvalda og hásetunum að fella mastrið, því það var mögulegt á mörgum þeirrar tíðar skipum. Vann vélin nú það betur að báturinn hélt upp í, en hafði ekkert framdrif. Þetta voru óglæsilegar kringumstæður fyrir Hlíf og áhöfn hennar. Foráttubrim og strönd að baki, og ofsaveðri og stórsjó móti að sækja. Þar að auki liðið fram yfir miðjan dag. Ennfremur og þá engin talstöð eða gúmbjörgunarbátur.
Valdimar hugkvæmdist að við aukinn og léttari smurning, þá mundi vélin vinna betur. Bauð hann því Sigvalda vélstjóra að fara niður, setja smurolíu í smurkönnuna, hita hana svo á glóðarhausnum, þar til olían væri lapþunn, hella henni síðan á smurglösin, sem voru tvö á hvorum „cylinder“ og hafa lullopið frá þeim inn á stimpilinn. Því loks við þetta ráð fór að miða áfram, þannig var gert alla heitnleiðina og var Sigvaldi bundinn niðri við þetta verk því halda þurfti smurkönnunni um leið og olían var hituð, sjógangsins vegna. Ófært var að slá í bakborða, eilítið til hlés og fara austan við Elliðaey og njóta skjólsins þar, því Breki var uppi. Klukkan 12 á miðnætti kom Hlíf að landi, eftir þrotlausa á klukkustunda siglingu og barning, gegn stormi og stórsjó. Vegalengd, sem venjulega var farin á þremur stundarfjórðungum.
Allir þóttu Hlíf úr helju heimta hafa, því menn reiknuðu með að henni hefði hlekkzt á og jafnvel hrakið upp í Elliðaey að vestan.
Í þessum veðurofsa sökk v.b. Skuld við legufæri sín í höfninni, símastaurar féllu niður og annað tjón varð.
Næst eftir miskunn almáttugs Guðs, má hiklaust telja hugsun og lægni formannsins, til þess að Hlíf náði landi þennan óveðursdag. Má þar um leið nelna hvorttveggja: kjölfestuna, er báturinn fékk af veiðarfærunum, fellingu mastursins og háttinn í meðferð smurolíunnar. En það var aldrei gert nema í ýtrustu neyð, bætir Valdimar við.
Á v.b. „Gammur“ V. E. 174, sem var 0 smálesta súðbyrðingur, með 10 hk SkandiavéJ, var Valrlimar formaður eina vertíð. Nefnda vertíð var byrjað að róa með línn um miðjan janúar. Tíðarfar var erfitt til sjósóknar. Eá mikið í austan-átttim. Komið var fram í niiðjan lebrúar og sama otíð hafði haldi/t. Seint að morgni leit út fyrir sjóvcður, var þá kall-að um klttkkan átta og farið al stað frá bóli klnkkan níu. Vont veður hafði ver-ið ttm ntntina, því talsverður sjór og \ inclur var strekkingur allhvass á atistan. Lágsjávað var og byrjað aðfall. liratit stunduin á lciðinni.
Þegar Ganmrnr var kominn þvert norður al Hringskers-hafnargarði (syðri garðinum), snarstoppar vélin. Aú voru g(')ð ráð dýr. Enginn bátur nálægur i gangi og vélin an/aði ekki gangsetningu. Cirjótfaðmur 1 lörgseyrarhafnargarðs blasti við, og vindur, straumur og sjór, rnynclu innan stundar bera Ciamm þang-að, ef ekki kæniu skjót ráð til lausnar. Þá var ekki um endalok áhafnar Gamms að spvrja, en þeir voru tjórir þar um borð nelndan rciður.
Akkerið var látið falla og fékk festu strax. Kcðjan hélt. ítrekaðar tilraunir með gangsetningu vélar reyndust árang- urslausar, vegna olíutruflunar. Vegna h't- ils svigrúms var útilokað að nota segl eins og á stóð. Kom nú frjó hugsun Valdimars formanns og skjótræði að góðum notum. Partur af sleftóginu, sem var traust gras- rnanilla var sett föst í polla afturá.
Bttndið svo við legufærið að framan, fyrir utan skjólborð. Góður belgur settur á grastógið. Síðan var sleppt að framan, vrð það snarsnérist báturinn og snéri nú alturenda uppí, en framenda r stefnu á leiðina. Fokkan var tilhöfð og hífð upp, um leið var sleppt legufærinu. Báturinn fékk nú góðan skrið á sig og komst vcl frír af norður-hafnargarði og inn leið. Kom nú til móts við þá á Gammi, v.b. Atlandis, formaður Runólfur Runólfs-son frá Bræðratungu, Garnminum til hjálpar, en þeir komnst hjálparlaust að bryggju á scgiunum einum saman. Við bryggju var komizt fyrir olíutrufl-unina og haldið í róður næsta dag. Ekki fá orð lýst hrifningu, fögnttði og þakklæti, að svo vcl skyldi til takast, hjá \'aldimar og áhöfn hans. Því litlu þurfti að muna þarna að ekki skyldi hljótast slys af, eins og skeð hafði nokkrttm árum áður. F.n þeir á Gammi fengu að reyna í þetta sinn, scm sérhver sjómaður verð-ur svo oft vottur að. „Hollur cr sá scm hlífir." Skr;'ið cflir siign Valdimars Aniasonar. E. J. G.