Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1984/ Ljóð eftir Lýð Ægisson skipstjóra

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. desember 2016 kl. 14:56 eftir Halla1 (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. desember 2016 kl. 14:56 eftir Halla1 (spjall | framlög) (Ný síða: Ljóð eftir Lýð Ægisson skipstjóra Þeir sem ganga hinn gullna veg gleði og blessun hljóta. Ævi hinna er ömurleg sem öllu bölva og blóta. Þú ert blautur en býsna klá...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ljóð eftir Lýð Ægisson skipstjóra


Þeir sem ganga hinn gullna veg gleði og blessun hljóta. Ævi hinna er ömurleg sem öllu bölva og blóta. Þú ert blautur en býsna klár berð þig vel í þynku. Þolir allvel frost og fár og fyrirlítur linku. En Bakkus gamli brýtur allt og brenglar öllum vonum. Þeim löngum reynist lánið valt sem leika sér að honum. Hafðu frá mér heillaráð — hættu stút að naga —. Þá líf þitt verður ljóma skráð og ljúf þín ævisaga. 19. mars 1983 MINN BESTI VIN Oft ég Ieiði hugann heim til þín og horfi oní æskusporin mín. Ég minnist þess hve mild þú varst og góð. Mamma, ég þér helga þetta ljóð. SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA Margt var erfitt æskuárin mín ótal margt sem hrelldi litla sál. Þá man ég alltaf mildu orðin þín þá miklu ást sem sérhvert slökkti bál. Fyrstu árin man ég furðu vel finn þann yl sem fékk ég þá þér frá. Ég næturvökur þær ei núna tel en nýt þess enn hve natin varstu þá. Ef allir ættu einhvern að sem þig einhvern sem að stæði slíkan vörð. Og hefðu öðlast heppni á við mig þá himnaríki væri hér á Jörð. Þú átt skilið indælt ævikvöld þar sem einlæg ást og gleði hafa völd. Því ætla ég, ó elsku mamma mín í ellinni að fá að gæta þín.