Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1957/ Ferðasögukorn
B A L D U R J O II N S E N D. P. II. II É R A Ð S L Æ K N I R :
Frrðfliúnulícfrn
Landsýn Þegar farið er frá Rcykjavík til suðausturs í góðu skyggni fljúgandi, blasir við auga hið fegursta útsýni, til norðurs jöklar hálendisins og suður undan hinar fögru gresjur suður-landsundirlendis, nieð stórum vatnsföllum, hin sérkennilega strandlengja sandanna og úti í hafsauga grænir kollar Veslinannaeyja á rauðbrúnu standbergi. Aður en varir er komið austur uin Horna-fjörð, og hátign landsins, OræfajökuII, að hverfa í blámóðu norðurs og vesturs. Snöggvast sér yfii hin reglulegu og meitl-uðu fjöll Austfjaiðanna með spegilsléltuni lygnum lónum á milli og svo hverfa Austfirð-irnir von bráðar; en áður en varir, máske hefur manni ruimið blundur á auga, í mjúku hægindi við væran vélaklið, þarna eru þá hin forniföstu fjöll Austfjarðanna komin aftur. Þá var kallað upp, að þar væru Færcyjar. Það voru alveg samskonar berglög og á Aust-fjörðum, enda mun um samtíma og samskon-ar bergniyndanir að ræða á Færeyjahryggn-um, sem einu sinni náðu til Islands, en Atlantshafið nú skolar yfir mestan hlutann af. Hér var uin það bil hálfnuð leið til Noregs. Þessi ferð var að vísu farin í janúar, en þó var sumarlegt um að litast í Færeyjum og á Islandi, enda hitinn að morgni þessa dags í Reykjavík 8 eða 9 stig á Celsius. Noregur En þegar nálgaðist strendur Noregs var far-ið að kólna í veðri. Þó var að sjá snjólétt yfir útncsjum í Nor-egi á slóðum Haugasunds, þar sem flogið var yfir, en þar var nú vetrar-síldveiðin að hcfj-ast, en Norðnienn binda eins og áður miklar vonir við þá vertíð. Nú er flugið hækkað að mun og haldið inn yfir hálendið sunnanvert við Harðanguisfjöll-in. þar sem vetur konungur ríkir í óllu sínu vekli, og sér hvergi á dökkan díl svo langt sem augað eygir. Þegar halla tekur niður af hálendinu og komið er yfir Naumudalimi austan fjalls, verða trjátopparnir snjónum yfirsterkari, því að nú er komið yfir hin miklu skógarsvæði Norðmanna, sem eru þeirra mesla auðlind. sem byggir upp, með rafvæðingunni, geysileg-an iðnað, auk þess, sem hér hefur lengi verið um að ræða öruggan og verðmætan timbur-útflulning. Það er atvinnuvegur, sem getur bætt upp eina og eina misheppnaða vertíð, án þess mik-ið komi við kaunin. Þegar á þessar slóðir er komið austan fjalls, er allt einn samanhangandi skógur, í dölum, yfir fjöll og hálsa. Það sjást aðeins snjóa-slóðir þar sem skógurinn er höggvinn fyrir vegi, þar sem hinir íniklu rafstrengir eru lagð-ir milli héraða og þar sem meiri háttar skíða-brautir eru gerðar. Hér eru hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir skóginn, skógarfuruna og grenið. Miklir sum-arhitar, samfelldir vetrarkuldar, blotalausir með snjóum meðan vetur er, en vorinu hægt að teysta, og siðast en ekki sízt hægviðri og slaðviðri sumar og vetur, svo að sjaldan blaktir hár á höfði. og þekkist varla að snjó dragi í skafl. Osló Og þarna kemur Osló út úr frostþokunni. Það er farið að skyggja, því að við hófum rnissl úr 2 klukkustundir, vegna þess að flogið var frá vestri lil austurs. A flugvellinum var 15 stiga frost, og eru það töluverð viSbrigð'i frá íslandi, eða um 25 sliga munur, enda loS-húfurnar vetrarþjóSbúningur hér. Osló liggur eins og skeifa um skógi klædda ása fyrir botni fjarðarins, feikilega víðáttu-mikil, en raunar með miiina stórborgarsniði en syslur hennar á Norðurlöndum. Svipað má segja um aðrar borgir austan-fjalls í Noregi, þær líkjast nieira þéttbvlum sveitum en kaupslöðum. eins og við eiguin að venjast þeim. Hér hefur landslag og gróður ráðið nokkru um, en þetta fyrirkomulag á vel við skapferli Norðmanna, sern aldrei hafa þol-að kúgun eða ófrelsi, allt frá dögum Haraldar hárfagra, en vilja hafa vítt lil veggja og hátt til lofts, jafnt andlega sem efnislega. Þótt ekki sé meiningin að staldra lengi við i Osló að þessu sinni, þá verður að minnast þess sera þar er markverðast að finna, og ekki á sinn líka annars staðar, en þar á ég fyrst og fremst við víkingaskipin, sem grafin hafa ver-ið úr jörð, og komið fyrir í miklum sýningar-sölum í útjaðri borgarinnar, á Bygðeyju. Skipin cru 3, öll fundin við Osló-fjörðinn, og lýsa betur en mörg orð fá gert víkingaöldinni, og vekja að sjálfsögðu íslending til margvís-legra hugleiðinga um forlíð síns eigin lands og sambandið við Noreg. Á Bygðey er einnig að finna hið fræga pólarfar Friðþjófs Nansens, Fram, svo og Kon-Tiki flekann, og má því segja, að á þess-um stað sé heiðri Norðmanna sem siglinga-þjóðar vel á loft haldið og ekki að óverð-skulduðu.
,Ja, vi elsker dette landet ..." Loks verður þess að geta, að Norðmenn eru með afbrigðum listelskir menn, og kemur það hvað ljósast fram í skreytingu borgarinnar, og í gerð nýrra eða nýlegra bygginga, og nægir í því sambandi að nefna ráðhúsið, sem er ein samfelld ævarandi listsýning, bæði utanhúss og innan. Lislasöfn Vigelands bæði úti og inni eiga hvergi sinn líka, þar sem norski myndhöggv-arinn Gustav Vigeland fékk áratugum saman tækifæri til að vinna að sköpunarstarfi sínu. Og eru t. d. í einum garðinum, sem tekur yfir 30 hektara lands, um 150 stórbrotin listaverk, sem þó inynda eina samræmda heild. Þótt stórborgarbragur sé minni á Osló en t. d. Stokkhólmi og Kaupmannahöfn, þá hefur þó tekizl vel og myndarlega með uppbyggingu miðbiks borgarinnar, þar sem konungshöllin og slórþingshúsið standa við Stórþingsgötu og Karls Jóhanns-götu. 30 Norðmenn eru ælljarðarvinir ineiri en tíðk¬ast um aðra menn, en þeir eru það á viðfelld-inn hátt, sem er í ælt við „holt er heima hvat". Þeir cru ættjarðarvinir frá alþjóða-sjónar-miði, eins og mönnum er títt sem mikið ferð-ast, enda eru Norðmenn mesta siglingaþjóð heims, og kunna að meta það að koma heim. Landið er líka fagurt og stórbrotið og gott til ábúðar dugmiklum mönnum, og náttúru-auð-legð mikil, bæði skógar, vatnsföll og náinur, að ógleymdum fiskveiðibönkunum vestan fjalls, allt norður í Dumbshaf. Gautaborg Það var kallað, að nú yrði komið til Gauta-borgar eftir 15 mínúlur. Menn néru stírurnar úr augunum eftir óværan nætur-svefn í hrað-lestinni frá Stokkhólmi. Ferðalagið hafði tekið alla nóltina um snævi þaktar merkur Austur-Gautlands og Vestur-Gautlands. Hér leyfði skógurinn enga útsýn, nema rétt upp í alstirndan himininn, nema sæi yfir akurrein og bændabvli í rjóðri. Það var uppi fótur og fit í lestinni, enginn vildi verða of seinn að komast út, menn tróð-ust um pakka og pinkla, töskur og kislur, og svo var komið með rjúkandi kaffið á bakka, áður en síðasta áfanganum lauk. Gautaborg liggur við ósa Gautelfar, hinnar miklu móðu, sein rennur úr stórvatninu Van-ern, en í henni ofanvcrðri er Tröllhettan, sem gefur þessum héruðum rafmagn. Gautaborg er næst-stærsta borg Svíþjóðar og mesta hafnarborg. í gamla daga var Gautelfur og næsta ná-grenni hennar eina sambandið, sem Svíar höfðu vestur á bóginn. Fyrir sunnan áttu danskir Skán. Halland og Bleking, en fyrir norðan Norðmenn Víkina, sem nú kallast Bó-húslén. A þessum slóðum var því oft róstusamt. sænskir reyndu að stækka fleyginn út að ströndinni, en danskir stóðu í móti. Þessi héruð bera bardögum og hermdar- SJÓMANNADACSBLAÐ VESTMANNAEYJA
verkum vitni enn þann dag í dag, því að víða hafa skógar verið brenndir, og standa þar enn eftir berar jökulnúnar granit-klappir, þar sem áður voru blómlegar gróðurlendur, jafnvel stórir eikarskógar. Greinarhöfundur hefur farið þessa ferð til þess að kynnast sem bezt, hvernig afla megi og hreinsa neyzluvatn og sjó við erfið skil-yrði, og þess vegna verður viðstaðan ekki löng í Gautaborg, en þegar haldið norður í Skerjagarðinn, þar sem einu sinni var mikil síldarútgerð, og er enn nokkur, auk þorsk-veiða o. s. frv. Hér hefur síldin verið kenjótt eins og víðar. í gamla daga voru uppgrip af síld í Eyrar-sundi og Kattegat, en síðari árin sárlítið. Fiskibæirnir hafa bætt sér þetta upp með því að flytja til sín síld af íslands-miðum, og halda áfram í krafti þess innflutnings að vera mestir framleiðendur síldarflaka og gaffalbita um gjörvöll Norðurlönd, og þótt víðar væri leitað, enda vel til framleiðslunnar vandað, og ekkerl til sparað að hreinlætið mætti verða sem mest; en þar er grundvallaratriðið nóg og gott rennandi vatn, sem hér var þó erfitt að afla, þurfti að flytja um langan veg yfir fjöll og firð<, en rafhreinsaður sjór notaður þar sem vatnið þraut til þvotta. Víldn Eins og áður var sagt heitir Víkin nú Bó-húslén, og var löngum þrætuepli Svía og Norðmanna, eða Svía og Dana. Hér er hinn svokallaði Skerjagarður. Það er fjöldi af smá-eyjum, með djúpum sundum á milli við ströndina, og því hin ákjósanlegustu hafnar-stæði fyrir smáskip, gömlu víkingaskipin, engu síður en fiskiháta nútímans. Inni í landinu voru samfelldir skógar um lága hálsa og hæðir allt frá Gautelfi norður til Noregs. Hér voru og eikarskógar, sem sköp-uðu fyrstu víkingunum úr Víkinni sjósóknar-skilyrði. Lysekil Það er lagt af stað með lestinni í bítið um morguninn frá Gautaborg og eigi komið til Lysekil fyrr en laust eftir hádegi, enda víða komið við, meðal annars í hinni ört vaxandi skipasmíðaborg Uddevalla, svo og Munkadal. Leiðin liggur fyrst til hafrannsóknarstöðv-arinnar, sem hér er staðsett, en þar starfar ágætur doktor í efnafræði, Lundborg að nafni, sem fundið hefur upp aðferð til að hreinsa sjó. Eftir að Lundborg hefur sýnt mér aðferð sína á fræðilegan hátt ráðleggur hann mér að fara norður til Gravarna, fiski- og fiskiðnað-arbæjar nokkurs, sem liggur norðar í skerja-garðinum, en þar hafa tæki þessi til sjóhreins-unar lengst verið í notkun við hina frægu Abba-gaffalbitaverksmiðjur. Áður en ég skil við Lysekil má ég til mcð að geta þess, að borgin, þar sem búa um 7000 íbúar, var einu sinni aðalsíldveiðibær Sví-þjóðar; það var á sildarárunum 1747—1808,
en svo hvarf síldin af þeim slóðurn, en borgin lifir enn af síldar- og öðrum fiskiðnaði. þótt þar sé nú orðið engin útgerð, en ekki litið við öðru en Islandssíld í hina dýrmætu gaffalbita og síldarflök, sem Svíar eru frægir fyrir uin öll lönd. Þarna er allt neyzluvatn leitt um langan veg. sumpart á hafsbotni yfir djúpan fjörð, en rafhreinsaður sjór notaður í fiskiðn-aðinum.
Skerjagarðurinn Um eftirmiðdaginn er farið með flóabátn-um frá Lysekil norður á bógiun. Þar sem að-eins er farið innan skerjagarðsins, þarf ekki að gera ráð fyrir miklum ágjöfum, enda far-angur allur á dekki, en mikil yfirbygging á skipinu, þar sem farþegar höfðu hinar skemmlilegustu vistarverur. Það eru ekki margir farþegar með í þessari ferð, enda farið daglega um þessar slóðir, og lítið um ferða-fólk að velrinum, en að sumrinu sækir hingað margt ferðafólk víðs vegar að. Farið er um smáeyjar og fiskvciðabæi svo sem Malmön, Tángen. Smögen. Hassclösund og Gravarne. Siglingaleiðin virðist hrcin á milli eyjarina, cn þó mun vandratað um sundin og firðini. Eyjarnar eru ótrúlega gróðurlausar, scst ekki stingandi strá, aðeins rauðleitar klappirnar heflaðar af ísaldarjökli. Hér var einu sinni allt skógi klætt, en þegar spurt er, hvað valdi, þá er svarið: Það var „danskarinn". Þetta eru scm sagt þögul vitni þeirra tíma þegar danskir og sænskir þurftu að hafa stríð sín á milli eigi sjaldnar en annað hvert ár, og þá var rænt og ruplað og öll verðmæti brennd, sem ekki var hægt að komast með sem ránsfeng, og þannig fóru skógarnir. En þessar gróðursnauðu eyjar og nes hafa fundið aðra atvinnuvegi til lífsbjargar fólk-inu, sem sé fiskveiðar, og jafnvel þótt fiskur-inn hyrfi frá landinu, þá var síldin veidd ann-arsstaðar, eða keypt frá fjarlægum stöðum og flutt inn og breytt í margfalt verðmætari af-urðir, skipasmíðar teknar upp o. s. frv. Grorvarna í Gravarna er að vísu nokkur útgerð, en þar lifa þó flestir á síldariðnaði, og er ein-göngu notuð þar íslands-síld. Það er unnið úr saltsíldinni frá Siglufirði og Raufarhöfn. Það gefur fjölda manns stöð-uga atvinnu allt árið og verðmæta framleiðslu. en Siglfirðingum aðeins atvinnu 1—2 mánuði að sumrinu og mjög verðlítinn útflutning, miðað við möguleika. Hér eru stærstu gaffalbitaverksmiðjur Sví-þjóðar, sem kallast ABBA. Þær eru um allan útbúnað til fyrirmyndar, en ekki leyfist ókunnugum að koma þar mjög nærri. Þó fékk ég fyrir tilmæli vinar míns frá Lysekil að skoða sjóhreinsunartækin, sem þarna voru í notkun, en þau eru hin stærstu simiar tegund-ar. Eftir ferðalagið um skerjagarðinn með ferj-unni, sem stóð allt til kvölds, er komið aftur á fastalandið og haldið til baka með bifreið og járnbraut til Gautaborgar, sem aðeins var áfangi á lengri leið, en það væri efni í annað ferðasögubrot, sem ekki verður skráð að sinni. Það er gott að ferðast og sjá háttu annarra þjóða. og Norðmenn og Svíar eru okkur ís-lendingum svo skyldir um margt, að þess er frekast að vænta að þangað megi sækja íyrir-greiðslu og upplýsingar um mörg viðfangs-efni, sem ofarlega eru á baugi hjá oss hér á íslandi. 15. maí 1957.