Jónas Bjarnason (Sjólyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 10:55 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 10:55 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jónas Bjarnason fæddist 1894 í Keflavík.

Jónas kom til Vestmannaeyja árið 1919 og hóf að róa á Ófeigi. Árið 1924 hóf hann formennsku á Stakksárfossi en þann bát hafði hann keypt frá Færeyjum ásamt Jóni Hinrikssyni. Var hann formaður á honum til 1930.

Eftir að Jónas hætti formennsku gerðist hann fiskmatsmaður og vann við það um árabil.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 6-7 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.