Pálína Eiríksdóttir (Varmahlíð)
Pálína Eiríksdóttir húsfreyja í Varmahlíð, fæddist í Kraga á Rangárvöllum 10. apríl 1895 og lézt í Eyjum 13. jan. 1983.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Pálsson, f. 1866 og k.h. Þuríður Magnúsdóttir, f. 1873.
Pálína var vinnukona í Landeyjum og síðar í Breiðholti hjá Jónatan Brynjólfssyni. Hún var síðan húsfreyja í Varmahlíð um árabil.
Eiginmaður hennar var Ágúst Jónsson sjómaður, trésmiður, f. 1891.
Börn þeirra voru:
1. Rut, f. 1920.
2. Auður, f. 1922.
3. Sara, f. 1925.
4. Marta, f. 1928.
5. Hafsteinn, f. 1. nóvember 1929.
6. Þyrí, f. 1934.
7. Arnar, f. 1936.
8. Eiríka, f. 1938.
Heimildir
- Víglundur Þór Þorsteinsson skrifaði í upphafi.
- Valgeir Sigurðsson. Rangvellingabók. Hella: Rangárhreppur, 1952.
- Hafsteinn Ágústsson.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.